148. löggjafarþing — 46. fundur,  10. apr. 2018.

breyting á ýmsum lagaákvæðum sem tengjast fiskeldi.

457. mál
[19:48]
Horfa

sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra (Kristján Þór Júlíusson) (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrirspurnina. Það er alveg rétt að hér er verið að gera grundvallarbreytingu, ef svo mætti að orði komast, á starfsemi fiskeldisfyrirtækja og því sem snýr að eldi í íslenskum sjó. Það er verið að lögleiða ákveðið tæki, áhættumatið, til að reyna að tryggja að villtir laxastofnar og eldisfiskur blandist ekki úr hófi við þetta mat sem Hafrannsóknastofnun er ætlað að vinna. Eins og með stofnstærðarmatið í botnfiski eða uppsjávarfiski byggjum við sömuleiðis á vísindalegri ráðgjöf og rannsóknum.

Það skal alveg viðurkennt að við erum ekki komin ýkja langt á sviði fiskeldisins. Það kann vel að vera að meðan við erum að þreifa okkur áfram í þessum nýja veruleika þurfum við að vinna það með einhverjum öðrum hætti, örari endurskoðun o.s.frv. Það eru vissulega heimildir fyrir því að ráðherra taki fram fyrir hendurnar á vísindastarfinu, en slík ákvörðun ráðherra þarf þá að vera allrækilega rökstudd og byggja á einhverjum öðrum vísindalegum niðurstöðum eða rannsóknum en hafa komið fram í þeirri vinnu sem í þessu tilfelli Hafrannsóknastofnuninni væri ætlað að sinna. Ég hef satt að segja ekki nokkra ástæðu til að ætla annað en að Hafrannsóknastofnunin, eins og fleiri stofnanir hins opinbera, geri nokkuð annað en að vinna á grundvelli bestu fáanlegrar þekkingar hverju sinni.