148. löggjafarþing — 46. fundur,  10. apr. 2018.

breyting á ýmsum lagaákvæðum sem tengjast fiskeldi.

457. mál
[19:50]
Horfa

Halla Signý Kristjánsdóttir (F) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir svarið. Ég get alveg verið sammála honum í því að við þurfum að fara með mestu varúð í þessum efnum og við getum verið sammála um að vísindin og regluverkin eru mikilvæg. Vöxtur og viðgangur eldisins má alls ekki vera á kostnað náttúrunnar eða villta laxastofnsins. Við eigum að bera virðingu fyrir okkar helstu vísindamönnum en hræðsla hefur verið um að það lokist inni í einhverju ósveigjanlegu kerfi.

Við þurfum bara að vera vakandi yfir því og ég ætla bara að undirstrika það.