148. löggjafarþing — 46. fundur,  10. apr. 2018.

breyting á ýmsum lagaákvæðum sem tengjast fiskeldi.

457. mál
[19:57]
Horfa

Líneik Anna Sævarsdóttir (F) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra svarið og fagna því að styrkja eigi eftirlitið. Ég held að það sé mjög mikilvægur þáttur í að byggja upp traust og sátt. Það skiptir máli að bæði Umhverfisstofnun og Matvælastofnun komi að því.

Síðan hafa einnig komið fram hugmyndir um hvort önnur hvor þessara stofnana eða báðar gætu samið við heilbrigðiseftirlit sveitarfélaganna á viðkomandi svæði um að sinna ákveðnum þáttum í eftirlitinu sem þarf kannski jafnvel að sinna oftar en hægt er að sinna um langan veg. Auðvitað er annar möguleiki að eftirlitsmenn búi á nærsvæðum fiskeldisins.