148. löggjafarþing — 46. fundur,  10. apr. 2018.

breyting á ýmsum lagaákvæðum sem tengjast fiskeldi.

457. mál
[20:00]
Horfa

Sigurður Páll Jónsson (M) (andsvar):

Hæstv. forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir að leggja fram þetta frumvarp og fyrir hans tölu í þessu máli. Það hefur verið fróðlegt að fylgjast með þróun laxeldis undanfarin ár og eiginlega áratugi. Ég hef átt þess kost að heimsækja laxeldisstöðvar fyrir vestan og það er gríðarlega gaman að sjá hvað tækninni hefur fleygt mikið fram og hvað þetta eflir mikið byggðir á Vestfjörðum sem hafa í mörg ár átt undir högg að sækja hvað atvinnu og afkomu varðar.

Í þessu frumvarpi er, eins og komið hefur fram, breyting á ýmsum lögum. Ég hef verið að reyna að ná utan um það um hvað það snýst. Það kom fram eins og með áhættumat og úrgang frá búrum sem kallaður er áseta. Ég átta mig ekki alveg á hvernig þær reglur eru. Heyrst hefur að því sé ekki alveg framfylgt á þeim stöðum þar sem fiskeldið hefur verið, hvernig umgengnin um svæðin er. Allt þarf þetta að vera, eins og kom fram í ræðu ráðherrans, í sátt við bæði umhverfið og það sem málið snýst um.

Eins kom ráðherrann inn á auðlindagjald og mig langar að spyrja hann hvernig það er þá hugsað, í hvernig formi það væri tekið. Er það eitthvað svipað og í sjávarútvegsauðlindinni? Eins kom hann inn á laxalús og ég spyr: Er komin einhver (Forseti hringir.) aðferð til að halda henni niðri?