breyting á ýmsum lagaákvæðum sem tengjast fiskeldi.
Varðandi geldlaxinn er ástæðan fyrir að hann er ekki kominn lengra sú að tilraunir með hann hafa gengið fremur illa hjá Norðmönnum. Við höfum ekki gert tilraunir með þetta sjálf en það er einboðið að fylgjast vendilega með og taka stöðu í því ef færi gefast. Ég hef ákveðið að ýta undir það, það eru full færi til þess, og nýta þá Umhverfissjóð sjókvíaeldis í þeim tilgangi að styðja rannsóknir í þessa veru ásamt því að styðja þætti sem geta snúið að lokuðum eldiskerfum sem m.a. koma í veg fyrir það lúsafár sem allir vilja losna við.
Það er margt að gerast í þessu. Framþróunin er hröð og það er full ástæða til bjartsýni í mínum huga fyrir því að hvort tveggja geti gengið saman, bæði atvinnuuppbyggingin og vernd hins lífræna fjölbreytileika. Þetta hvort tveggja á alveg að geta gengið saman ef við (Forseti hringir.) vöndum okkur og tökum hæg og örugg skref.