148. löggjafarþing — 46. fundur,  10. apr. 2018.

stjórn fiskveiða.

429. mál
[20:36]
Horfa

Frsm. atvinnuvn. (Lilja Rafney Magnúsdóttir) (Vg) (andsvar):

Herra forseti. Já, ég hef lesið áhyggjur sveitarstjórnar Árneshrepps í þessu máli og virði þau sjónarmið en ég held að við þurfum að fara af nákvæmni ofan í það hve mikið magn og hversu margir róðrardagar hafa verið hjá þeim bátum sem hafa stundað þar útróðra á strandveiðum til að skoða það. Eins og ég hef skilið það á B-svæði yfir höfuð, þetta tilheyrir B-svæði, hafa þeir að jafnaði verið með næstfæsta daga undanfarin ár á því svæði. Ég myndi ætla að það væri álíka vestan megin Húnaflóans.

Það er gott að gera út frá Norðurfirði. Það ætti ekkert að hamla þeim sem hafa farið þangað og haft góða aðstöðu að gera út áfram með fasta 12 daga og velja bestu dagana til að ná í besta hráefnið og hæsta verðið. (Forseti hringir.) Ég hef ekki áhyggjur af því svæði en vildi gjarnan að það væru tíu leyfi fyrir trillur fastar við Árneshrepp, þann góða stað.