stjórn fiskveiða.
Herra forseti. Já, það sem stendur upp úr er að öllum verði tryggðir 12 dagar. Það er kjarninn í þessu. Ef öllum eru tryggðir 12 dagar dregur úr þeim áhyggjum að sjómenn á Þórshöfn, Djúpavík, Höfn í Hornafirði og Reykjavík, hvar sem er, fari að gerast flökkumenn vítt og breitt um landið. Þá eru menn bara rólegir á þeim stað þar sem þeir hafa gert út og eiga sitt heimili, hafa 12 daga til þess að vinna með og fara á sjóinn þegar viðrar vel og sækja gott hráefni. Við erum ekki að kalla yfir okkur einhvern ólympískan anda því að þessi tilraun á að ganga út á að hann sé úr sögunni. Við höfum þá fast land undir fótum með það, menn vita að hverju þeir ganga. Þess vegna mun ég eins og ég hef sagt róa að því öllum árum að tryggja það því að annars verður þessi tilraun ekki (Forseti hringir.) sú tilraun sem ég vildi sjá.