148. löggjafarþing — 46. fundur,  10. apr. 2018.

stjórn fiskveiða.

429. mál
[21:09]
Horfa

Álfheiður Eymarsdóttir (P) (andsvar):

Herra forseti. Ég vil þakka umræðu hv. þm. Sigurðar Páls Jónssonar og hlakka til að vinna þetta í atvinnuveganefnd áfram. Ég tel mikla þörf á því.

Ég var ánægð með að sjá allar þessar athugasemdir. En fyrst bæði formaður atvinnuveganefndar og hv. þingmaður nú í sínu andsvari vitna til athugasemda frá Landssambandi smábátaeigenda og túlka þær sem stuðning við frumvarpið held ég að þeir ættu að lesa umsögnina aðeins betur. Hér segir, með leyfi forseta, að það sé „ófrávíkjanleg krafa LS að verði frumvarpið að lögum sé engum vafa undirorpið að þeir sem hafa hug á að stunda strandveiðar 2018 geti verið fullvissir um að ekki komi til stöðvunar veiða“. Og síðar segir: „Stjórn LS mótmælir þó ákvæði frumvarpsins um heimild Fiskistofu til að stöðva veiðar …“

Þeir ítreka enn fremur að það sé mjög nauðsynlegt að tryggja þessa 12 veiðidaga. Maður tryggir þá ekki með því að hafa aflahámark. Það er alveg sama hvaða algebru maður notar til að reikna það reikningsdæmi, það er ekki hægt.