148. löggjafarþing — 46. fundur,  10. apr. 2018.

Íslandsstofa.

492. mál
[21:36]
Horfa

Gunnar Bragi Sveinsson (M) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka ráðherranum fyrir svarið og vil taka það fram að ég er ákaflega ánægður með þetta frumvarp. Ég held að frumvarpið sé mjög gott og mikil vinna að baki því klárlega. Það er algjörlega ljóst að það er mjög mikilvægt að ná betur utan um þessa hluti. Það er gott að samstaða er um málið, ekki síst við atvinnulífið.

Ég ætla hins vegar að leyfa mér að kannast aðeins við vandamálið. Ég held að það sé nefnilega þannig að ráðuneyti, sama hvað þau heita, vilja ekki láta frá sér verkefni eða fjármuni vegna þess að það eru í því ákveðin verðmæti, ákveðin völd. Þar held ég að hundurinn liggi grafinn. Því miður hefðum við getað náð enn betra og einfaldara systemi ef við hefðum einfaldlega fært þessi verkefni undir utanríkisráðuneytið þar sem mér finnst þau eigi heima. Það á ekki að vera með markaðsstarf eða markaðsþjónustu í einhverjum feluleik í öðrum ráðuneytum. Mér finnst þetta í raun bara galið.

Ég skil hins vegar vel stöðu ráðherra. Það þurfti að ná um þetta einhvers konar samkomulagi, það er alveg ljóst. Við verðum hins vegar einhvern tímann að losna út úr því mynstri að ef ráðuneytið fær einu sinni verkefni eða peninga þá hangir það á því eins og hundur á roði.