Íslandsstofa.
Virðulegi forseti. Svo að ég fari yfir, því að ég held að það sé mikilvægt að allir séu á sama stað, heildarmyndina í þessu. Menn eru ekki að reyna að finna upp hjólið. Menn eru að líta til þeirra þjóða þar sem verið er að gera þetta prýðisvel. Þetta snýst um að hafa þennan vettvang, þetta tæki, þar sem aðilar sem verða að vinna saman við að ná árangri geta unnið saman. Það er skilvirkara að hafa fimm manna stjórn en mjög mikilvægt að allir þeir aðilar sem þurfa að koma að þessu komi að þessu máli. Þarna eru 29. Ég fékk gagnrýni í kynningu á þessu: Hvernig geturðu haft 29, er það ekki gríðarlega mikið? Ég get ekki séð að það geti verið minna. Ef við skoðum fulltrúa ráðuneytanna, mennta- og menningarmálaráðuneytisins, dugir ekkert minna en þrír þar. Það er svo margt undir þar, svo eitt dæmi sé tekið.
Ekki það að tæki eitt og sér er ekki nóg. Það verður síðan að virka. Ég held að við séum komin með tæki sem ætti að geta orðið til þess að allir aðilar sem þurfa að vinna saman geti unnið saman. Ég held að það sé mjög gott að vinna þetta eftir samningum og sérstökum verkefnum. Ég held að það sé gríðarlega mikilvægt að þau séu eins mælanleg og mögulegt er. Ég hef svo oft séð menn setja mikla fjármuni í allt milli himins og jarðar, sérstaklega þegar að þessum málum kemur. Svo þegar spurt er um árangurinn er sagt að það hafi bara gengið mjög vel. En það var aldrei í upphafi lagt upp með að reyna að mæla hvaða áhrif það hefði. Það er grunnhugmyndin á bak við þetta allt saman.
Við erum að vinna í þinginu með þeim hætti að við komum fram með frumvörp sem fara til nefndar, menn fá umsagnir og skoða einstaka þætti. Það er bara eitthvað sem ég treysti hv. utanríkismálanefnd og þinginu til að gera. Ef eitthvað má betur fara förum við bara yfir það. En mér finnst mjög mikilvægt að menn átti sig á því að bak við þetta liggur gríðarlega mikil vinna margra aðila sem þurfa að vinna saman og hafa náð sátt um þessa hluti. Við þurfum að taka það með í reikninginn þegar við ræðum þessi mál.