Íslandsstofa.
Virðulegi forseti. Í þeim undirbúningi sem átti sér stað á árunum 2013 til 2015, 2016 var ekki sérstaklega verið að horfa til landshlutanna sem slíkra. Ég kannast hins vegar vel við umræðuna frá markaðsskrifstofunum og utan af landi varðandi þá vinnu sem farið hefur fram innan Íslandsstofu. Auðvitað er það þannig að mönnum finnst aldrei of mikið gert og kannski hefði mátt gera betur og slíkt.
Eins vænt og mér þykir um allt sem er úti á landi sé ég ekki alveg hvernig á að innvikla alla sem eiga einhvers konar hagsmuna að gæta inn í þær breytingar sem hér er um að ræða. Ég tel hins vegar alveg sjálfsagt mál að þeir fulltrúar sem sitja í þessu nýja útflutnings- og markaðsráði hljóti að vera vel tengdir. Tökum fulltrúa ráðuneytanna sem dæmi, ferðamálaráðherra verður með fulltrúa þarna, það ágæta fólk hlýtur vitanlega að vera vel tengt inn í landshlutana.
Gleymum því ekki að ekki er verið að breyta lögum um Íslandsstofu með þessu frumvarpi, það er bara verið að bæta þau. Þar er alveg skýrt að þessi nýja sjálfseignarstofnun mun hafa ákveðnar skyldur gagnvart öllum Íslendingum, öllu landinu. Það er þá okkar að fylgja því eftir að menn slaki ekkert á þar. Ég minni líka enn og aftur á að Íslandsstofa er samstarfsverkefni atvinnulífs og ríkisins. Vitanlega eru alls konar flækjur í því. En ég held að þetta sé samt sú leið sem er best til þess fallin að ná sem bestum árangri.