148. löggjafarþing — 46. fundur,  10. apr. 2018.

Íslandsstofa.

492. mál
[22:53]
Horfa

utanríkisráðherra (Guðlaugur Þór Þórðarson) (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Eins og hv. þingmaður vísar til komu fram athugasemdir frá umboðsmanni sem taldi að skýra þyrfti hlutverk stofnunarinnar og stöðu. Það var aldrei hugsunin að þetta yrði ríkisstofnun. Það var aldrei lagt af stað með það og engin samstaða er við aðila atvinnulífsins um að svo verði. Hún átti aldrei að starfa sem ríkisstofnun. Þegar þessi staða kemur upp þarf þess vegna að bregðast við því. Þá er niðurstaðan sú að hún verði sjálfseignarstofnun. Þar af leiðandi eiga þessi lög sem þarna eru tilgreind ekki við. Til að taka af öll tvímæli er það skrifað inn í frumvarpið svo að við lendum ekki í sömu stöðu og við lentum í þegar athugasemdir komu frá umboðsmanni Alþingis.

Ég heyri að það gætir ákveðinnar kerskni og kannski stríðni hjá hv. þingmanni, ekki gagnvart þeim sem hér stendur heldur samstarfsflokknum. Ég ætla svo sem ekki að leggja mikið á mig til að stoppa það. En það breytir hins vegar engu um þá staðreynd málsins að þetta átti aldrei að vera ríkisstofnun. Ég get alla vega ekki barið mér á brjóst og sagt að hér hafi ég tekið ríkisstofnun og einkavætt hana því að aldrei var lagt upp með það. Ef þessar athugasemdir hefðu ekki komið frá umboðsmanni Alþingis hefðu menn væntanlega ekki farið eitthvað sérstaklega í að árétta að þetta væri sjálfseignarstofnun og að þau lög sem eiga við um stjórnsýslustofnanir og ríkisstofnanir eigi ekki við.