almenningssamgöngur.
Virðulegi forseti. Það er rétt sem kemur fram hjá hv. fyrirspyrjanda, menn höfðu háleit markmið um að það tækist að breyta ferðatilhögun fólks með því að það færi að nota almenningssamgöngur meira. Reynslan allra síðustu árin hefur satt best að segja verið í hina áttina. Við höfum einnig verið að skoða þetta í almenningssamgöngum á landsbyggðinni þar sem sama tilhneiging hefur verið síðasta árið, jafnvel síðustu tvö árin. Aukningin sem varð fyrstu árin hefur ekki haldið áfram í sama takti og hefur jafnvel dregið úr henni á sumum svæðum. Heildarstuðningur og það hvernig við getum staðið að þessum almenningssamgöngum er til skoðunar. Á landsbyggðinni hafa landshlutasamtökin og Vegagerðin sagt upp þeim samningum en verið tilbúin að framlengja um eitt ár engu að síður á meðan smíðað er nýtt kerfi.
Varðandi þann samning sem er hér á höfuðborgarsvæðinu og hv. þingmaður spurði sérstaklega út í hefur það enn verið til skoðunar og ég hef ekki verið upplýstur um nákvæma niðurstöðu þess. Mér er ekki kunnugt um að annar hvor aðilinn hafi sagt samningnum upp. Menn hafa farið yfir þessi gögn, sem eru auðvitað nokkuð sláandi, á sama tíma og menn hafa velt fyrir sér að auka verulega almenningssamgöngur á höfuðborgarsvæðinu til að leysa úr vanda sem ellegar blasir við með fjölgun fólks.
Á sama tíma hafa bæði ráðuneytið og Vegagerðin komið að því með sveitarfélögum á höfuðborgarsvæðinu myndað stýrihóp þar sem menn hafa tekið á þessum forsendum samgangna en með þeim fyrirvara þó að skoðað yrði fleira en almenningssamgöngur. Þetta eru allar samgöngur því að við þurfum auðvitað að leysa þann vanda heildstætt, sérstaklega í ljósi þess að þróunin hefur ekki verið í þeim vanda sem menn höfðu búist við upphaflega.