148. löggjafarþing — 47. fundur,  11. apr. 2018.

tilhögun umræðu um fjármálaáætlun.

[15:40]
Horfa

Forseti (Steingrímur J. Sigfússon):

Samkomulag er um fyrirkomulag umræðu um fjármálaáætlun 2019–2023. Verður sú umræða bæði í dag, á morgun og í upphafi fundar á föstudag þar sem fram fer lokaumferð.

Í dag verður almenn umræða um fjármálaáætlunina í framhaldi af framsögu fjármála- og efnahagsráðherra, en á morgun munu svo fagráðherrar taka þátt í umræðum um einstaka málaflokka.

Fjármála- og efnahagsráðherra hefur allt að 15 mínútur til framsögu og verða leyfð lengd andsvör, þ.e. tryggt verður að fulltrúar allra stjórnarandstöðuflokka geti veitt full andsvör við ræðu ráðherra. Síðan tala einn til tveir þingmenn frá hverjum þingflokki í þessum fyrsta hluta umræðunnar, þ.e. þingflokkar stjórnarandstöðunnar geta tilnefnt tvo ræðumenn ef þeir svo kjósa. Gilda þá venjulegar ræðutímareglur um þær ræður og andsvör verða leyfð.