fjármálaáætlun 2019--2023.
Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir svarið. Svo það sé sagt þá er ég mjög fylgjandi því að liðum eins og þessum verði splittað upp, bara til að bæta tilfinningu þeirra sem höndla með þá, fyrir því hvar kostnaður liggur og hvar tekjur koma inn.
En það er annað atriði sem mig langaði til að impra á á þeim stutta tíma sem ég hef, það varðar þau skilaboð sem komu fram um samgöngumál í tillögu til þingsályktunar. Þarna er verið að horfa til þess að bæta inn 16,5 milljörðum á þremur árum 2019–2021 sem er um 1 milljarði umfram það sem vantar upp á samgönguáætlun fyrir árin 2013–2016. Það er nú öll stóra innspýtingin og stóra átakið. Ég held að ríkisstjórnin hljóti að hafa einhver áform um frekari uppbyggingu í samgöngukerfinu en þetta gefur svigrúm til.
Þess vegna langar mig til að spyrja hæstv. ráðherra hvort að þau áform liggi í frekari gjaldtöku, vegtollum eða einhverju öðru formi, sem sagt með öðrum hætti en með fjármögnun úr ríkissjóði. Ég fullyrði að það verður engin sátt um þann framkvæmdahraða sem endurspeglast í þeim fjárveitingum sem tilgreindar eru á þessu fimm ára tímabili í samfélaginu. Spurningin er sem sagt, ég finn það ekki í þingsályktunartillögunni: Eru áform uppi innan ríkisstjórnarinnar um að bæta sérstaklega í með sértækri gjaldtöku, hvort sem það eru vegtollar, skuggagjöld eða annað sambærilegt?