148. löggjafarþing — 47. fundur,  11. apr. 2018.

fjármálaáætlun 2019--2023.

494. mál
[16:17]
Horfa

fjármála- og efnahagsráðherra (Bjarni Benediktsson) (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Varðandi efnahagsspár þá tel ég að það sé engin önnur raunhæf leið fær en að byggja áætlanir í fjármálaáætlunargerðinni á því sem Hagstofan lætur okkur í té. Það hafa komið fram ýmis varnaðarorð. Auðvitað er þar fyrst og fremst horft til síðari hluta áætlunartímabilsins, þess hluta þar sem menn eru á aðeins veikari grunni með spárnar eins og almennt er eftir því sem horft er lengra inn í framtíðina. Um þetta hef ég fjallað í inngangsorðum mínum í framsöguræðu minni, þ.e. við munum auðvitað á hverju ári horfa til næstu fimm ára. Ef aðstæður breytast þá munum við einfaldlega þurfa að taka tillit til þess. En ég heyri ekki þá sem koma fram og færa fram gagnrýni á að við séum að fylgja hagspám Hagstofunnar, sem reyndar ríma ágætlega við hagspár Seðlabankans eða eftir atvikum það sem Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn sér fyrir, með neitt annað í umræðuna en að menn ættu að gera ráð fyrir að þetta gæti klikkað. Það er svo sem alveg gilt sjónarmið, en ég held að við séum á réttum grunni að vinna með þær upplýsingar sem eru opinberar og jafnvel þótt það hafi komið fram varnaðarorð þá sé engin ástæða til þess að taka tekjuhliðina til endurskoðunar í grundvallaratriðum svo dæmi sé tekið.

Hér er vísað til fjármálastefnunnar. Í fjármálastefnunni er verið að vinna með enn grófari línur en í fjármálaáætluninni. Ég er algjörlega ósammála hv. þingmanni um að það þurfi að tiltaka sérhverja skattbreytingu sem gæti komið til álita á líftíma ríkisstjórnarinnar þegar hún í upphafi kjörtímabils leggur fram fjármálastefnu. Mér finnst það bara algjör óþarfi. Það eina sem skiptir máli í fjármálastefnunni er að menn séu með skýra sýn á það hversu mikill afgangur er nauðsynlegur við þær aðstæður sem eru uppi og hvernig skuldaþróunin á að vera. (Forseti hringir.) Að öðru leyti eru menn bara að gera grein fyrir helstu áherslumálum sem síðan kallast á við stjórnarsáttmálann. (Forseti hringir.) Fjármálaáætlunin er síðan meiri útfærsla á því.