148. löggjafarþing — 47. fundur,  11. apr. 2018.

fjármálaáætlun 2019--2023.

494. mál
[16:20]
Horfa

Björn Leví Gunnarsson (P) (andsvar):

Virðulegi forseti. Vissulega verður ríkisstjórnin að byggja á spá, en það er ekkert gert í rauninni til þess að tryggja að spáin rætist eða varnaðarorðum sé mætt. Ég les það ekki úr fjármálaáætluninni í rauninni að tekið sé alla vega tillit til varnaðarorðanna og sagt: Þetta eru þær aðgerðir sem við ætlum að fara í til að koma til móts við það. Ég nefndi ekki að það ætti að telja upp sérhverja skattbreytingu í fjármálastefnunni, að sjálfsögðu ekki, heldur að hún sé alla vega það víðtæk eða dínamísk að hún geti brugðist við mismunandi aðstæðum og þá hvaða skattbreytingar það væru eða annað sem myndi vera tiltekið í þeim tilvikum. Hún var ekki upp á mjög mörg orð skattstefnan í fjármálastefnunni.

Varðandi lækkun tekjuskattshlutfallsins þá sýndi einmitt greining ASÍ að um hækkandi skattbyrði hefur verið að ræða á þá sem eru með lægri laun í þó nokkuð mörg ár. Þá myndi ég telja eðlilegt að horft væri til þeirra breytinga og reynt að lagfæra þá skekkju sem hefur orðið á undanförnum áratugum, mig minnir að hún hafi verið yfir 20 ár aftur í tímann. Að því leyti væri flöt prósentulækkun á tekjuskatti einmitt ekki leið til þess að ná því markmiði. Gagnrýni mín snýr í rauninni að því í orðaskiptum ráðherra áðan við hv. þm. Ágúst Ólaf Ágústsson. Þessi lækkun um 14 milljarða myndi t.d. duga til þess að afnema þessa krónu á móti krónu skerðingu sem oft hefur verið talað um hjá örorkubótaþegum og meira að segja meira til. Ég myndi alla vega kalla eftir því að það yrði horft til þeirra gagna sem við höfum fengið um þá skekkju sem hefur orðið á undanförnum árum og reynt að laga hana, (Forseti hringir.)en ekki eitthvað annað eins og menn virðast vera að gera hér.