fjármálaáætlun 2019--2023.
Virðulegi forseti. Ég heyri alveg hvað hv. þingmaður er að segja hérna. Við tókum umræðu um fjármálastefnu fyrir ekki svo löngu og þar vorum við meðal annars að slaka á afkomu ríkissjóðs. Vegna hvers? Vegna þess að við sjáum slaka í efnahagslífinu. Ég rakti það í ræðu minni, ef ég má rifja það upp. Ég sagði einfaldlega að heldur hefði slaknað á í spennu í okkar hagkerfi og ýmis spennumerki í þenslu væru að minnka. Er þá ekki skynsamlegt, hv. þingmaður, að við slökum á skattaklónni og aukum ríkisútgjöldin til þess að vega þar á móti? Það eru meginskilaboðin sem eru í þessari fjármálastefnu.