fjármálaáætlun 2019--2023.
Hæstv. forseti. Við ræðum ríkisfjármálaáætlun. Hv. þm. Björn Leví Gunnarsson var hér í sinni seinni ræðu. Ég vil byrja á því, fyrst hv. þingmaður var fyrr í andsvari við hv. þm. Oddnýju G. Harðardóttur, að ræða þennan eitraða kokteil sem hv. þingmaður endaði sína ræðu á að nefna, þar sem vissulega er að finna áform um skattalækkanir og það er raunútgjaldaaukning á mörgum af okkar mikilvægustu samfélagslegu innviðum.
Þá vitnaði hv. þingmaður til orða minna, að ég hefði sagt í andsvari við hv. þingmann að útgjaldaaukningin væri hógvær. Ég held að ég hafi örugglega sagt að skattalækkanir væru hógværar. En látum það vera. Ég vildi bara koma því að.
Ef við ræðum aðeins um skattana er það hárrétt sem komið hefur fram og hæstv. fjármála- og efnahagsráðherra fór mjög vel yfir það að tekjuskatturinn — nú hafa á liðnum misserum verið aðgerðir til lækkunar skatta fyrr, miðþrepið klippt út. En frá árinu 2015 hefur tekjuskatturinn skilað 40% tekjuauka, virðisaukaskattskerfið hefur líka verið að skila auknum tekjum.
Spurning mín til hv. þingmanns lýtur að einstökum skattalækkunum í þessari áætlun. Hv. þingmaður hefur ekki tjáð sig um þá skatta. Tekjuskattur lækkaður um 1%, sérstakur bankaskattur er lækkaður, sem var ekki hugsaður inn í framtíðina. Tryggingagjaldið er lækkað, þak er endurskoðað vegna þróunarkostnaðar og áform um að afnema þakið. Hvernig stendur (Forseti hringir.) hugur hv. þingmanns til þessara stöku skattbreytinga til lækkunar?