148. löggjafarþing — 47. fundur,  11. apr. 2018.

fjármálaáætlun 2019--2023.

494. mál
[20:40]
Horfa

Þorsteinn Víglundsson (V) (andsvar):

Herra forseti. Ég tek undir með hv. þingmanni að það væri vissulega gott. Vonandi fáum við greinarbetri upplýsingar um það í fjárlaganefnd hvar raunverulega er verið að beita einhverju aðhaldi. Merkin eru svo sannarlega ekki augljós í mínum huga þar. Það er hins vegar annað sem er líka áhugavert í þessari málamiðlun þessara flokka sem þó virðist ekki vera þeim neitt sársaukafull því það er annað sem þeir virðast algerlega sammála um, það er skattstefnan í þessari fjármálaáætlun sem kemur svo bersýnilega fram. Hún myndi nú á alla mælikvarða vera skilgreind sem hefðbundin hægri skattstefna en Vinstri grænum virðist vera nokkuð ljúft að beygja sig undir þá stefnu.

En það er athyglisvert sem hér hefur verið bent á og hv. þingmaður kom inn á í ræðu sinni að það er ekki að sjá miklar breytingar á skattkerfinu eða jöfnunarhlutverki skattkerfisins í fjármálaáætlun. Þvert á móti virðist einmitt gengið verulega á það hlutverk skattkerfisins. Ég myndi í síðari andsvari vilja spyrja hv. þingmann: Er hann sammála mér í því mati? Að þegar við horfum til stuðnings við barnafjölskyldur, til húsnæðisstuðnings, sé haldið áfram þeirri stefnu sem virðist hafa verið í gangi mörg undanfarin ár, að rýra verulega þetta jöfnunarhlutverk skattkerfisins og sér í lagi á kostnað þeirra sem kannski síst mega við því, þ.e. tekjulægstu hópanna þegar kemur t.d. að húsnæðiskaupum og ekki síður stuðningi við barnafjölskyldur í gegnum bæði vaxtabætur og barnabætur?