148. löggjafarþing — 47. fundur,  11. apr. 2018.

fjármálaáætlun 2019--2023.

494. mál
[20:44]
Horfa

Ólafur Ísleifsson (Flf):

Herra forseti. Í fyrri ræðu minni gerði ég að umtalsefni hið ólíka viðmót sem blasir við þeim sem standa hér höllustum fæti, tala nú ekki um þá sem þiggja bætur frá almannatryggingum þar sem þeir eru í þeirri aðstöðu að hver króna er talin eftir eins og birtist í því að leitist þetta fólk við að bæta kjör sín, bæta sinn hag, með því að auka tekjur sínar með vinnu, ef það býr yfir þeirri starfsgetu sem leyfir það, að þær viðbótarkrónur sem þannig falla til eru teknar til baka um leið í krafti gjörhugsaðs og úthugsaðs skerðingakerfis sem lýsir mætti mannsandans í þessu efni.

Má ég leyfa mér að nefna það, herra forseti, að þegar leitast er við að greina hina pólitísku stefnu sem birtist í þeirri fjármálaáætlun sem hér liggur fyrir blasir við annað stórmál sem mjög kom við sögu í kosningabaráttunni og í almennum umræðum að undanförnu í okkar fagra landi en það er nauðsyn á uppbyggingu innviða sem svo eru kallaðir. Nýleg ummæli sjálfs samgönguráðherra lýðveldisins eru um að vegakerfið sé nánast ónýtt. Hver eru viðbrögð ríkisstjórnarinnar við því að hér sé ónýtt vegakerfi? Jú, 5,5 milljarðar á ári á þremur almanaksárum á því tímabili sem þessi fjármálaáætlun tekur til, 5,5 milljarðar, herra forseti. Að bestu manna yfirsýn dugir það fyrir einum jarðgöngum af styttri gerðinni. Þetta er stórátakið, hið stóra innviðaátak þessarar ríkisstjórnar. Um leið er af hennar hálfu ekki skilgreint með hvaða hætti eigi að bregðast við þeirri nauðsynlegu þörf á uppbyggingu sem blasir við sem hleypur samkvæmt kostnaðarmati jafnvel á hundruðum milljarða. Okkur vantar svör við því með hvaða hætti ríkisstjórnin ætlar að bregðast við þessari nauðsyn vegna þess að hér eru innviðirnir ónýtir eftir því sem samgönguráðherra segir. Hér eru 2–3 milljónir manna á ferð um vegi landsins, erlendir ferðamenn o.s.frv. Það vantar svör um fjármögnunarkosti, fyrirkomulag framkvæmda, einkaframkvæmd eða hvað. Þarna er stórum spurningum ósvarað.

Auðvitað mætti grípa mjög víða niður en af einstökum málefnum leyfi ég mér að vekja athygli á því og segja að maður saknar þess að ríkisstjórnin skuli ekki koma til móts við þá fjölmörgu sem verða fyrir örorku ár hvert og leitast þannig við að minnka nýgengi hennar.

Herra forseti. Ríkisstjórnin hefur lýst því að hún standi fyrir stórsókn í heilbrigðismálum, ekki síst á sviði geðheilbrigðismála. Það blasir við öllum mönnum að hér er þörf á miklu átaki og hér er fólk í miklum andlegum nauðum. Hvert er svarið við því af hálfu þessarar ríkisstjórnar? Það að taka burtu úrræði sem hefur gefist vel, hefur verið við lýði í 15 ár, hefur hlotið almannalof og lof af hálfu sérfræðinga sem það hafa tekið út og metið. Það er í samræmi við markmið sem sett hafa verið fram af hálfu Sameinuðu þjóðanna. Það þarf engan sérfræðing til að átta sig á því að það er bara ein aðferð til að fjarlægja botnlanga úr manni, en þegar andlegar nauðir herja á fólk þarf fjölbreytileg úrræði. Maður hefur gengið undir manns hönd við að reyna að skýra fyrir ráðamönnum að úrræði Hugarafls og þess geðteymis sem vinnur með því er eitt af því sem er í boði hér og hefur reynst fólki vel en það blasir við að í krafti einhverrar þráhyggju, leyfi ég mér að segja, ég ætla ekki að vera með nein stóryrði, er það úrræði á endastöð ef hinir ágætu ráðamenn taka ekki við sér. Það blasir við að á sama tíma og ríkisstjórnin boðar stórsókn í geðheilbrigðismálum láta tveir ráðherrar ríkisstjórnarinnar standa sig að því að daufheyrast við ákalli, síðast í gær með mótmælastöðu og áhrifamiklum viðtölum í fjölmiðlum sem létu engan mann ósnortinn sem þau heyrðu, af hálfu þeirra sem hafa notið þessarar þjónustu og aðstandenda þeirra, um að verja það úrræði sem Hugarafl er og geðheilsuteymið, úrræði sem hefur reynst fjölmörgu fólki vel í andlegum nauðum.

Ég leyfi mér að segja að það er hryggilegt að horfa upp á framkomu ríkisstjórnarinnar við skjólstæðinga, aðstandendur og forráðamenn Hugarafls og geðheilsuteymisins sem með því starfar með árangri sem hvarvetna hefur verið lokið lofsorði á. Orð og efndir verða að fara saman. Það er ekki nóg að segja að hér sé eitthvert stórátak í geðheilbrigðismálum. Þegar á reynir verða menn að sýna hvern mann þeir hafa að geyma og nú blasir við að það á að taka fyrir starfsemi sem hefur reynst vel, hlotið almannalof og mest af hálfu þeirra sem hafa notið þessarar þjónustu. Með leyfi forseta ætla ég að vitna í afar merka grein eftir merkan skólamann, Tryggva Gíslason, sem var skólameistari Menntaskólans á Akureyri, grein sem hann reit og birtist í Morgunblaðinu 3. apríl þar sem vakin er athygli á því að þetta úrræði byggist á nýrri leið innan íslenska geðheilbrigðiskerfisins í samræmi við áherslur í aðgerðaáætlun Alþingis í geðheilbrigðismálum. Þetta er í samræmi við ályktun Sameinuðu þjóðanna í þessu efni og Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar.

Um hvað snýst þetta úrræði? Það snýst um það sem kallast opin úrræði og samstarf við þá sem leita eftir þjónustu. Þeir leita eftir þjónustu á eigin forsendum og þeir koma án tilvísunar frá lækni.

Í þessari starfsemi er beitt þýðingarmiklu hugtaki, hugtakinu valdeflingu. Hvað merkir það? Það að hafa vald til að taka ákvarðanir sjálf, hafa aðgang að upplýsingum og úrræðum, læra að hugsa á gagnrýninn hátt, hafa áhrif á eigið líf, efla jákvæða sjálfsmynd og vinna bug á fordómum.

Nú bregður svo við að í tíð ríkisstjórnarinnar sem leggur höfuðáherslu á stórátak í geðheilbrigðismálum hefur yfirstjórn Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins ákveðið að leggja niður fjögur stöðugildi sem tengst hafa þessu hjálparstarfi. Þetta er ekki rökstutt. Heilbrigðisráðherra sem verður að mörgu leyti að bera mikla virðingu fyrir og mikið traust til hefur ekki enn lagt til lausn á málinu sem ráðherra ber þó skylda til að gera. Það á að fella þetta hjálparstarf undir tilvísunarkerfi og þeir sem á hjálpinni þurfa að halda geta ekki lengur leitað beint til þjónustu á eigin forsendum og án tilvísunar frá lækni með þeirri fyrirhöfn og þeim kostnaði sem því fylgir.

Í tíð ríkisstjórnar sem leggur höfuðáherslu í heilbrigðismálum á geðheilbrigðisþáttinn sem öllum mönnum er ljóst að kallar á árvekni og umbætur skal þetta úrræði mega fordjarfast með þessum hætti. Ég skora á þá sem eiga hér hlut að máli að taka til hendinni, standa upp og segja: Þetta mun ekki gerast á okkar vakt.

Ég skora á hæstv. heilbrigðisráðherra. Ég skora á hæstv. félagsmálaráðherra. Hér er í salnum hæstv. fjármálaráðherra. Ég veit að hann er alls góðs maklegur og vel treystandi og ég leyfi mér að treysta því (Forseti hringir.) að þessu máli verði borgið í heila höfn án þess að á því verði unnið það tjón sem hér blasir við.