fjármálaáætlun 2019--2023.
Virðulegi forseti. Mig langar örstutt að staldra við þessa ræðu þegar kemur að nýsköpun, rannsóknum og þróun á Íslandi. Nú er það svo að á undanförnum árum höfum við stóraukið stuðning við samkeppnissjóðina og flestir orðnir sammála um að á vettvangi sprotafyrirtækja stöndum við Íslendingar nokkuð vel varðandi fjárhagslegan stuðning eða styrktarkerfið. Við á Alþingi höfum sömuleiðis á undanförnum árum tekið skattalega umhverfið til gagngerrar endurskoðunar. Ég stóð hér í gær og mælti fyrir frekari breytingum á þeim þætti. Við höfum sömuleiðis gert breytingar varðandi tækifæri til að laða erlenda sérfræðinga til landsins með svokölluðum „expat“ reglum og veitum skattafslátt í takmarkaðan tíma þegar sérfræðingar eru að koma í fyrsta sinn til að starfa á Íslandi. Nú boðum við það að við ætlum að setja marga milljarða á komandi árum í að styðja við fyrirtæki sem eru komin upp af sprotastiginu og eru að fara í vaxtarstigið. Nákvæm útfærsla á þessum stuðningi er auðvitað öll eftir. En þegar þetta er allt saman tekið ásamt með því að við boðum hér að taka til endurskoðunar þökin á endurgreiðslum vegna rannsókna og þróunar, þá spyr ég mig: Hvað er það sem hv. þingmaður á við að við ættum að vera að gera fyrir nýsköpun í landinu sem er ekki verið að gera? Hversu mikla fjármuni sér þingmaðurinn fyrir sér að við ættum að vera að verja í þá málaflokka? Hvaða efnislegu breytingar eru það fyrir nýsköpunarfyrirtæki sem hv. þingmaður er að kalla eftir?