fjármálaáætlun 2019--2023.
Herra forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir andsvarið. Mér er bæði ljúft og skylt að svara því. Ég vil byrja á að segja að það er auðvitað mjög margt gott sem hefur verið gert í fortíð og engin ástæða til að lasta það. Það er alveg rétt, við höfum staðið okkur að mörgu leyti ágætlega, en það sem ég var að fjalla um voru hin nýju fyrirheit. Ef það er þannig að mati hæstv. ráðherra að það sé eiginlega búið að gera flest allt sem gera þarf, af hverju í ósköpunum er þá verið að leggja svona mikla áherslu á þennan málaflokk í sáttmála ríkisstjórnarinnar? Af hverju er verið að tala þar um í ákvæðum um þjóðarsjóð að verja peningum til nýsköpunar og þróunar ef fyrir því er að fullu séð? Ég verð því eiginlega að varpa spurningunni til baka.
Ég vil líka spyrja hæstv. ráðherra, af því að hann nefndi það að fyrirhugað væri að setja, ég vona ég fari rétt með, marga milljarða, held ég hann hafi orðað það, til að styðja við sprotafyrirtæki. Ég spyr: Hvar eru þessir milljarðar sem er verið að bæta við? Ég sé þá a.m.k. ekki í fjármálaáætluninni, en kannski hefur mér yfirsést og þá er ágætt að hæstv. ráðherra leiðrétti mig í þeim efnum og ég yrði mjög glaður ef hann gæti bent mér á þessa mörgu, mörgu milljarða sem sprotafyrirtæki eiga í vændum.