148. löggjafarþing — 47. fundur,  11. apr. 2018.

fjármálaáætlun 2019--2023.

494. mál
[21:20]
Horfa

Jón Steindór Valdimarsson (V) (andsvar):

Herra forseti. Þetta er nú orðið allsérkennilegt. Ég er að spyrja hæstv. ráðherra um hvar hann finni sinni stórsókn stað í eigin fjármálaáætlun og hvernig hann fylgir eftir eigin stjórnarsáttmála. Þá svarar hann nánast með, ég verð eiginlega að segja skætingi og heimtar að ég fari að útskýra það hvar þessir peningar eru. Síðan fer hann að tala um að það séu margir milljarðar í vændum, hugsanlega, kannski 3 milljarðar, hugsanlega, kannski, ef til vill. Átti ekki að nota þennan þjóðarsjóð til þess að byggja hjúkrunarheimili? Er það misskilningur? Átti hann ekki að vera varasjóður til þess að mæta fjárhagslegum áföllum? Hvað af þessu á að gera? Á að gera þetta allt saman? Stendur það allt þarna? Já, vill ráðherra bara gjöra svo vel þegar hann heldur ræðu sín á eftir sýna mér hvar framlög úr þjóðarsjóði til nýsköpunar eru færð til bókar í þessari áætlun ríkisstjórnarinnar til næstu fimm ára. Mér þætti mjög vænt um að sjá það.