fjármálaáætlun 2019--2023.
Hæstv. forseti. Hæstv. samgönguráðherra og formaður Framsóknarflokksins sagði um daginn þegar þetta plagg hér, ég veit ekki hvort þetta er rétta plaggið, var kynnt, að þetta væri akkúrat það sem ríkisstjórnin sem nú situr hefði verið stofnuð um. Það var óvenjuleg hreinskilni af hans hálfu, en þetta plagg undirstrikar að það er alveg hárrétt sem þessi ágæti ráðherra sagði, þetta er ástæðan fyrir ríkisstjórnarsamstarfinu. Það er ekki hér. Það er þarna. Það eru stólar. Ekkert annað.
Hæstv. félagsmálaráðherra og jafnréttisráðherra segist ætla að hefja vinnu, hann ætlar að hefja vinnu við starfsgetumat, hann ætlar að hefja vinnu við málefni aldraðra, allt er þetta óljóst og ekki í hendi. Hann ætlar að fara að semja við fólk sem gefur þessu plaggi einkunnina, með leyfi forseta: Ávísun á fátækt og eymd.
Svo ég haldi áfram að vitna í formann Öryrkjabandalagsins segir hún, með leyfi forseta:
„Fjármálaáætlun ríkisstjórnarinnar mun halda við og búa til félagsleg vandamál frekar en að færa fram lausnir. Það er ekki verið að græða sár, sem við þurfum svo mjög á að halda, heldur er þetta eins og að setja plástur yfir gröft.“
Þetta er viðsemjandi hæstv. ráðherra sem ætlar núna að fara að hefja vinnu við að leiðrétta kjör þessa hóps sem treystir ríkisstjórninni að verji þau svona vel eins og hér kemur fram.
Ég spyr: Af hverju í ósköpunum tók ríkisstjórnin ekki á með okkur í Miðflokknum á sínum tíma í fjárlagaumræðunni, aflétti frítekjumarki þannig að fólk gæti unnið sér inn peninga án þess að þurfa að líða fyrir það? Og af hverju í ósköpunum (Forseti hringir.) tók ekki ríkisstjórnin á sig rögg í fjárlagafrumvarpinu og hækkaði (Forseti hringir.) persónuafsláttinn? Það mundi koma því fólki til góða strax.