fjármálaáætlun 2019--2023.
Frú forseti. Sú viðræða sem á sér stað hér í kvöld er mikilvægur viðburður. Hér er staddur hæstv. félagsmálaráðherra ríkisstjórnarinnar til þess að ræða við þingmenn um stefnumál í sínum málaflokki. Hans málaflokkur er stór, víðfeðmur og mikilvægur. Það er því afar mikilvægt, frú forseti að hér fái þingmenn skýr og afdráttarlaus svör frá ráðherra.
Hæstv. forseti. Ég ætla að taka fyrir tvö mál á þeim stutta tíma sem er hér til ráðstöfunar.
Sem ráðherra í ríkisstjórn Íslands ber hæstv. ráðherra ábyrgð á því gjörhugsaða skerðingarkerfi sem kallað er króna fyrir krónu og sem í sínu innsta eðli felur í sér að hamla því að fólk sem býr við skerta starfsgetu, örorku, geti í krafti sjálfsbjargarviðleitni bætt sinn hag með aukinni vinnu. Það felur í sér að auknar tekjur eru hirtar af því, hver og ein króna með skertum bótum. Talin er eftir hver króna gagnvart þessu fólki á sama tíma og ríkisstjórnin sem ráðherra, hæstvirtur og ágætur, situr í, telur sig þess umkomna að skáka til vogunarsjóðanna 6 milljörðum króna á ári.
Ætlar hæstv. ráðherra að láta þetta skerðingarkerfi viðgangast áfram? Það er ekki tími, það er ekki vilji, það er ekki þolinmæði fyrir stofnanatali hér. Það verða að vera skýr svör og þau verða að vera afdráttarlaus. Ég nefni það, frú forseti, að hér er kallað eftir þátttöku stjórnarandstöðunnar í nefnd sem á að fjalla um starfsgetu. Stjórnarandstöðuflokkarnir fimm, sem eru jafn ólíkir og þeir eru margir, eiga að koma sér saman um einn fulltrúa. Getur ekki ráðherra séð til þess að stjórnarandstaðan hafi fulltrúa í þessari nefnd við hæfi?