fjármálaáætlun 2019--2023.
Virðulegur forseti. Eins og ég sagði áðan við hv. þm. Þorstein Sæmundsson þá er gert ráð fyrir í ríkisfjármálaáætlun 4 milljarða kr. aukningu til örorkulífeyrisþega strax á næsta ári þannig að það liggur líka fyrir þegar þessi vinna hefst um starfsgetumatið og að ræða kjörin, vegna þess að þetta eru tveir þættir sem spila saman. Það kann vel að vera að niðurstaðan verði sú að stigin verði einhver skref í öðrum þættinum sem er að bæta kjörin þó að heildarinnleiðing starfsgetumats sé ekki 100% í höfn. Þess vegna er svo mikilvægt að þessi vinna hefjist sem fyrst vegna þess að við viljum skoða þetta í samhengi og þetta verði í samræmi við þá vinnu sem ætlunin er að gera varðandi innleiðingu starfsgetumats.
Það er enginn að tala um mörg ár í þessu sambandi, hv. þingmaður. Það er enginn að tala um það. Það er ætlunin að setja fullan kraft í þessi mál. Það hef ég sagt. Þetta er eitt af tveimur áherslumálunum á þessu ári. Ég vonast til þess að menn komist langt á þessu ári. Á þessu ári eru ekki mörg ár.
Varðandi Hugarafl og geðheilsueftirfylgd sem vissulega, eins og fram hefur komið, heyrir bæði undir heilbrigðismálaráðherra og félagsmálaráðherra þá hefur heilbrigðisráðuneytið boðað ákveðnar kerfisbreytingar í þessum málum, en Hugarafl heyrir undir félagsmálaráðherra. Það liggur alveg ljóst fyrir, en þetta tengist með óbeinum hætti. Eina sem ég get sagt um þetta er að félagsmálaráðherra er að skoða þessi mál. Það hef ég sagt við forystumenn Hugarafls þegar þeir komu á minn fund. Ég hef átt samtöl líka við velferðarnefnd, forystumenn velferðarnefndar, um þetta, en félagsmálaráðuneytið getur ekki opnað heilbrigðisúrræði. Þannig að málefni Hugarafls eru til skoðunar í ráðuneytinu. Niðurstaða úr því liggur ekki fyrir að svo stöddu (Forseti hringir.) en ég á ekki von á öðru en að hún muni koma fram. Það er margt varðandi Hugarafl sem er mjög jákvætt og hvernig það er uppbyggt. Það hef ég sagt opinberlega líka.