fjármálaáætlun 2019--2023.
Virðulegur forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir spurningar hans og vangaveltur. Í fyrsta lagi vil ég segja að það flokkast ekki undir það að úthýsa stefnumótun ríkisstjórnarinnar að boða það að menn ætli sér að vera í góðu samráði við aðila vinnumarkaðarins. Hv. þingmaður sem á sína forsögu einmitt í Samtökum atvinnulífsins veit að þrátt fyrir að ríkisstjórn boði það að hún vilji eiga samráð og samtal við aðila vinnumarkaðarins þá hefur ekki alltaf verið svo að í því hafi falist einhver úthýsing á útfærslunum nákvæmlega. Það er auðvitað mikilvægt og ég held að við hv. þingmaður séum sammála um að það skiptir máli að stjórnvöld eigi gott samtal við aðila vinnumarkaðarins. Ég man eftir því að þegar hv. þingmaður var í forystu þar þá ítrekaði hann oft á tíðum að stjórnvöld yrðu að hafa meira samráð við aðila vinnumarkaðarins. Það er auðvitað það sem við erum að boða og það felur ekki í sér að verið sé að úthýsa stefnu ríkisstjórnarinnar.
Varðandi starfsgetumatið og fækkun örorkulífeyrisþega á gildistímanum þá er full alvara á bak við það, ríkisstjórnin ætlar sér að setja kraft í það að innleiða starfsgetumatið og að það geti verið farið að virka og tekið gildi á næsta ári. Þá liggur alveg ljóst fyrir að með þeirri breytingu ættum við jafnframt að geta aðstoðað það fólk sem við höfum rætt hér, fólk sem glímir við erfiðleika, tímabundna vil ég meina, við að komast aftur inn á vinnumarkaðinn með fjölþættum úrræðum. Þetta kerfi á að grípa það fólk. Þetta endurhæfingarkerfi sem starfsgetumatið er á að grípa þetta fólk.
Þannig að ég segi bara: Ástæðan fyrir því að gert er ráð fyrir þessari þróun á gildistíma áætlunarinnar er sú (Forseti hringir.) að ríkisstjórnin ætlar sér að klára starfsgetumatið. Mér finnst þetta undirstrika það að við ætlum okkur að gera það hratt og vel.