148. löggjafarþing — 47. fundur,  11. apr. 2018.

fjármálaáætlun 2019--2023.

494. mál
[22:10]
Horfa

Þorsteinn Víglundsson (V):

Frú forseti. Það er rétt hjá hæstv. ráðherra að í fyrri störfum mínum talaði ég gjarnan um mikilvægi góðs samtals milli stjórnvalda og aðila vinnumarkaðar. Ég gerði hins vegar aldrei ráð fyrir því að ég fengi lyklavöldin. Það finnst mér hins vegar eins og sé að verða raunin með yfirlýsingum stjórnvalda þegar kemur að skattamálum og fjölskyldumálum, bótakerfum og öðru slíku, að það sé engin sjálfstæð pólitísk stefna af hálfu stjórnvalda. Það er ekki boðað neitt samráð eða samtal við þingið og einfaldlega beðið eftir því að aðilar vinnumarkaðarins skilgreini hvað þeir vilji í þessum efnum. Það þykir mér kannski heldur langt gengið í samráðinu eða þá lyklaafhendingu ef mætti orða það svo.

Ég fagna því auðvitað að hér sé unnið áfram að innleiðingu á starfsgetumati, tel það mjög brýnt, tel núverandi örorkulífeyriskerfi fullkomlega gjaldþrota. En ég held að það sé hins vegar skynsamlegt að fara varlega í að áætla árangurinn af því kerfi strax í upphafi því að við höfum einfaldlega séð, m.a. í endurmati á útgjöldum til örorkulífeyrisgreiðslna bara á síðasta ári, að það hefur verið veruleg fjölgun í hópi öryrkja í núverandi kerfi. Það er óvarlegt að ætla að breytingin og viðsnúningurinn verði jafn skjótur og þarna er gert ráð fyrir þó svo að það væri vissulega ánægjulegt ef sú yrði raunin að fleiri fengju og fyndu tækifæri og stuðning til þess að leita út á vinnumarkaðinn.

Það sem ég sakna líka eru skýrari áform þegar kemur að mikilvægum úrræðum eins og atvinnu með stuðningi og sérstökum stuðningi við ungt fólk til virkni og þátttöku á vinnumarkaði. Þar hafa ýmis markmið verið tekin út eða gerð talsverð loðnari og óljósari þegar kemur að t.d. fjölgun samninga hjá Vinnumálastofnun um þríhliða vinnusamninga eða það sem nefnt hefur verið atvinna með stuðningi. Ég get ekki fundið í fljótu bragði nein markmið hæstv. ráðherra í þeim efnum, en hann getur kannski (Forseti hringir.) frætt mig um hvort það sé rangt hjá mér.