148. löggjafarþing — 47. fundur,  11. apr. 2018.

fjármálaáætlun 2019--2023.

494. mál
[22:12]
Horfa

félags- og jafnréttismálaráðherra (Ásmundur Einar Daðason) (F):

Virðulegur forseti. Aðeins að meintum lyklavöldum áður en farið er í að svara hinni spurningunni, en hv. þingmaður talaði um að það ætti ekki að hafa samráð við þingið, eingöngu aðila vinnumarkaðarins. Ég er búinn að tala um tvö helstu áhersluatriði míns ráðuneytis á þessu ári sem er annars vegar starfsgetumat og hins vegar málefni barna og snemmtæk íhlutun. Í báðum þessum tilfellum hef ég boðað það opinberlega og óskað eftir tilnefningum og hef sagt það nú í kvöld að ég vilji fá fulltrúa flokkanna og pólitíkina hér á þingi til samstarfs við mig. Það liggur ljóst fyrir að þá er ég líka að úthýsa valdinu til þeirra þingmanna sem ég boða þetta. Þetta eru tvö stór áhersluatriði á þessu ári. (Gripið fram í.) Nei, hv. þingmaður. Það er auðvitað ekki svo að þó að maður eigi samtal og samstarf við aðila vinnumarkaðarins sé það úthýsing. Það er það sem ég er að undirstrika.

Síðan varðandi starfsgetumatið. Eins og ég sagði ætlum við okkur að ná því að það fari að virka á þessu ári. Varðandi það sem hv. þingmaður kom inn á, úrræði sem mun þurfa samhliða starfsgetumatinu, ekki bara hjá Vinnumálastofnun heldur líka hjá VIRK, í heilbrigðiskerfinu, og úrræði sem atvinnulífið sjálft byggir upp, hlutastörf og annað, þá held ég að þar sé fremur veikleiki en í því að ná niður nýgengi. Við eigum að geta náð niður nýgengi á örorkunni því að ég tel það mikið í pípunum af fólki sem þarfnast endurhæfingar, ekki fólki sem er komið á örorku heldur sem er veruleg hætta á að sé á leiðinni í andlega erfiðleika, skulum við segja, eða líkamlega og það fólk mun þurfa aukin úrræði og hugsanlega einhver ný úrræði sem ekki þegar eru til. Ef einhvers staðar eru veikleikar í fjármálaáætlun sem snúa að félagsmálaráðuneytinu og starfsgetumatinu kann það að vera einmitt í þessum úrræðum. Að því leytinu tek ég undir orð þingmanns. (Forseti hringir.) En það liggur ekki ljóst fyrir hvaða úrræði það eru sem þarf að byggja upp. Ég er ekki endilega viss um að það sé bara það sem hv. þingmaður nefndi, vinnusamningar öryrkja. Það geta verið einhverjir aðrir þættir.