148. löggjafarþing — 47. fundur,  11. apr. 2018.

fjármálaáætlun 2019--2023.

494. mál
[22:19]
Horfa

Ágúst Ólafur Ágústsson (Sf):

Frú forseti. Hæstv. ráðherra talar um að endurskoða þurfi barnabótakerfið. En í þessari áætlun er einfaldlega búið að setja þak á hvað barnabætur megi kosta. Það er 10,5 milljarðar. Það er líka búið að ákveða að setja þak á hvað vaxtabótakerfið má kosta, 4 milljarðar. Það má ekki breytast næstu fimm árin samkvæmt áætlunum. Það er sorgleg afstaða. Við höfum hérna hæstv. félagsmálaráðherra sem er tilbúinn til að færa tölur innan þessa ramma en hefur engan metnað til að setja meiri pening í barnabótakerfið. Þegar Samfylkingin var síðast í ríkisstjórn settum við 100 milljarða kr. á kjörtímabilinu í barnabætur og vaxtabætur. Þetta hér er forgangsröðun sem Samfylkingin hafnar gersamlega.

Mig langar í lokin, í ljósi þess að ráðherrann er jafnréttismálaráðherra, að spyrja hæstv. ráðherra um afstöðu hans kjaradeilu ljósmæðra sem verið hefur talsvert til umræðu. Nú liggur fyrir þingsályktunartillaga frá Þorsteini Víglundssyni um þjóðarsátt um bætt kjör kvennastétta. Það væri fróðlegt að fá afstöðu ráðherrans til sérstaks átaks um að bæta kjör kvennastétta með þeim hætti sem ekki myndi valda einhverju launaskriði hjá öðrum stéttum.