fjármálaáætlun 2019--2023.
Hæstv. forseti. Það er aldeilis grábölvað að sá sem hér stendur skuli ekki vera félags- og jafnréttismálaráðherra. Ef hann væri það væri þegar búið að gera einhverjar ráðstafanir sem yrðu frá því núna, ekki inni í óráðinni framtíð. Það er ekki bölmóður að halda því fram að það sé ekki hægt að koma á starfsgetumati milli núna og áramóta. Það er reynsla sem segir það, reynsla af því að hafa stýrt nefnd í tvö ár og starfað í henni í þrjú, sem hafði einmitt þetta verkefni með höndum. Ég kann stærð verkefnisins. Það verður ekki leyst núna. Það á að leggja fram fjárlög fyrir næsta ár í september nk. Ríkisstjórnin sem nú situr, sem lamdi þessa loðmullu saman á ólöglegum tíma, getur ekki komið þessu á á þeim tíma. Ráðherra talar gegn betri vitund.
Við skulum þá taka tal saman 30. desember nk. við hæstv. ráðherra. Hafi þetta allt saman komist á koppinn skal ég glaður éta allt ofan í mig sem ég hef sagt hér í kvöld. En ég er næstum viss um að það verður ekki ég sem þarf að éta ofan í mig mín orð í kvöld, það verður hæstv. ráðherra sem þarf að gera það.