fjármálaáætlun 2019--2023.
Virðulegur forseti. Ég vil taka undir með hv. þingmanni með það að það þurfa að vera fjölbreytt úrræði í boði þegar kemur að félagslegum úrræðum í geðheilbrigðismálum vegna þess að þegar einstaklingar glíma við þennan vanda, hvort sem það væri ég eða hv. þingmaður, eru ólík úrræði sem henta hverjum og einum. Þetta er ekki eins og þegar springur í manni botnlanginn, þá fer maður bara til læknis og er sama hvaða læknir sker mann. Það er misjafnt hvað hentar hverjum og einum. Þess vegna hef ég lagt áherslu á það í gegnum það sem félagsmálaráðuneytið kemur að að reyna að byggja upp og styðja við fjölbreytt úrræði í þessum málum. Hugarafl er eitt þessara verkefna og fær nú þegar 17 milljónir í gegnum Vinnumálastofnun sem heyrir undir félagsmálaráðuneytið. Það er líka verið að styrkja Geðhjálp sem er með opið úrræði, Geðverndarfélag Akureyrar, Geysi og fleiri aðila sem bjóða svona sambærilega þjónustu. Þessi flóra verður auðvitað að vera lifandi og öflug og frjáls félagasamtök (Forseti hringir.) skipta þar máli. Ég hef sagt að mér finnist þau skipta máli. En það hvernig við getum tryggt framtíð eins úrræðis (Forseti hringir.) umfram annað við kerfisbreytingar verðum við að skoða í sameiningu, þing og framkvæmdarvald, og það er til skoðunar í ráðuneytinu.