148. löggjafarþing — 47. fundur,  11. apr. 2018.

fjármálaáætlun 2019--2023.

494. mál
[22:47]
Horfa

félags- og jafnréttismálaráðherra (Ásmundur Einar Daðason) (F):

Virðulegur forseti. Það er auðvitað svo varðandi þau kerfi sem við notum til jöfnunar, þ.e. húsnæðiskerfi, vaxtabótakerfi, barnabótakerfi og fleiri atriði, þá liggur það algjörlega ljóst fyrir að sú pólitíska sýn sem þar er er að þau nýtist í auknum mæli fyrir tekjulægri hópa, þannig að það er nú talsvert skýr sýn hvað það snertir. Frekari útfærslur á þeirri sýn verður unnin meðal annars í samráði við aðila vinnumarkaðarins. Þessi pólitíska sýn er algjörlega skýr og er til staðar og mikilvægt að fleiri komi að því að útfæra hana síðan í framhaldinu. Ég held að það sé bara jákvætt fyrir stjórnmálin að við förum í auknum mæli að beita samvinnunni að vopni til að ná víðtækari sátt um mál vegna þess að við komumst yfirleitt lengra með þeim hætti.

Varðandi fæðingarorlofið er rétt að hækkunin er hér inni, gert er ráð fyrir að hækka það. Hvað varðar lenginguna er það atriði sem gert er ráð fyrir að verði rætt við aðila vinnumarkaðarins á komandi ári. Þegar niðurstaðan úr því liggur fyrir þá er í framhaldinu hægt að koma með frumvarp.

Fyrir liggur að ríkisstjórnin er með það skýrt á stefnuskrá sinni að hún ætlar að hækka greiðslur, það kemur hér fram. Hún ætlar að lengja fæðingarorlofið á kjörtímabilinu. Staðið verður við það. Hv. þingmaður getur treyst því varðandi fæðingarorlofið að þegar gengið verður til kosninga að tæpum fjórum árum liðnum verður komið fram frumvarp á Alþingi og við verðum búin að sjá til lands í því, bæði að lengja fæðingarorlofið og hækka greiðslurnar. Og vonandi verðum við líka farin að sjá til lands í öðru máli sem skiptir ekki síður máli, og vonandi er farið að setja það af stað, þ.e. hvernig við ætlum að brúa bilið á milli fæðingarorlofs og leikskóla, sem er mikilvægt fyrir fjölskyldur og ekki síður mikilvægt jafnréttismál, eins og hv. þingmaður og fyrrverandi félags- og jafnréttismálaráðherra (Forseti hringir.) veit líkt og sá sem hér stendur.