148. löggjafarþing — 48. fundur,  12. apr. 2018.

fjármálaáætlun 2019--2023.

494. mál
[10:58]
Horfa

forsætisráðherra (Katrín Jakobsdóttir) (Vg):

Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir þessa spurningu. Það er svo að hlutverk skattkerfisins er auðvitað í senn að afla ríkinu tekna og hinu opinbera og standa undir þeim útgjöldum sem við viljum að hið opinbera standi undir. Síðan er það þetta jöfnunarhlutverk sem ég hef gert að umtalsefni hér ítrekað.

Grunnafstaða mín er sú að fjölþrepaskattkerfi sé besta leiðin til að jafna tekjur, en það er þó ekki eina leiðin. Eitt af því sem hefur verið rætt er það sem hv. þingmaður nefnir hér og kemur fram í rammagrein fjármálaáætlunar, þ.e. að ná í raun sömu áhrifum í gegnum persónuafsláttinn, að hann verði útgreiðanlegur, upp að vissu marki stighækkandi og síðan stiglækkandi eftir að hámarki hefur verið náð.

Skili þessi leið því markmiði sem ég vil sjá tekjuskattskerfið skila, þ.e. tiltekinni jöfnun innan skattkerfisins, er ég opin fyrir því að skoða hana. Ég vil segja, af því að ég hef verið að boða samráð við verkalýðshreyfinguna, að þetta er sú leið sem ýmsir innan hennar leggja mikla áherslu á. Þá vil ég horfa til þess að við nýtum þann tíma sem er fram undan fram að fjárlagafrumvarpi næsta árs til þess að reikna út hvernig þessi leið myndi koma út, hvar þessi mörk myndu liggja þar sem við sæjum þessa breytingu verða. Persónuafslátturinn myndi hækka upp að einhverjum mörkum, síðan fara lækkandi — hvar myndum við stilla þau mörk af? Skili þessi leið auknum jöfnuði í samfélaginu er ég til í að fara hana eins og hverja aðra leið. Í þessum málum eigum við að horfa á markmiðin en ekki bara leiðina.

Það stendur til að ráðast í skoðun á þessari leið og útreikninga, þannig að ég vonast til þess og ætlunin er að þær niðurstöður liggi fyrir þegar við tökum svo fjárlagafrumvarp næsta árs til skoðunar. Þá getum við tekið ítarlegri umræðu um það hvort við teljum (Forseti hringir.) að þessi leið skili þeim markmiðum sem við viljum.