148. löggjafarþing — 48. fundur,  12. apr. 2018.

fjármálaáætlun 2019--2023.

494. mál
[11:25]
Horfa

forsætisráðherra (Katrín Jakobsdóttir) (Vg):

Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir að taka þessi mál upp, af því að þau eru brýn. Hv. þingmaður vitnar hér til fortíðar, getum við sagt, þ.e. þegar almannatryggingakerfinu var breytt árið 2016 og hafði verið unnið að þeim breytingum í töluvert mörg ár. Þær voru gagnrýndar m.a. af mér á sínum tíma, en niðurstaðan varð sú að þær náðu eingöngu til eldri borgara. Það var gagnrýnt að kjarabæturnar nýttust fyrst og fremst þeim sem bjuggu einir en ekki sambúðarfólki. En niðurstaðan var þessi. Hún skilaði eldri borgurum úrbótum, hún skilaði verulega auknum fjármunum. Við þurfum að viðurkenna, þó að ég hafi ekki verið í ríkisstjórn þá, að þar voru gerðar verulegar úrbætur og aukin útgjöld í málaflokk eldri borgara.

Af því að hv. þingmaður nefnir þetta þá finnst mér mikilvægt að rifja upp að frítekjumark vegna atvinnutekna eldri borgara var hækkað í 100.000 kr. um síðustu áramót, en samtök eldri borgara hafa líka komið að máli við mig og óskað eftir því að þær breytingar sem gerðar voru á almannatryggingakerfinu 2016 væru metnar sérstaklega með tilliti til þess hvernig þær kæmu út fyrir tekjulægri hópa. Það stendur því til að fara í þá vinnu undir forystu hæstv. félagsmálaráðherra að meta þær breytingar og hvort þær hafi gagnist í því að lyfta sérstaklega þeim tekjulægri í hópi eldri borgara.

Síðan vil ég segja um örorkulífeyrisþega, og ég nefndi það hér áðan, að þar er gert ráð fyrir verulegri aukningu, a.m.k. 4 milljónum í þessar umbætur, og um 2 milljörðum bætt við í það sem við höfum kallað líffræðilega þróun, þ.e. vegna fjölgunar öryrkja. Síðan er gert ráð fyrir áframhaldandi aukningu á áætlunartímabilinu.

Ef ég vitna í textann er sérstaklega talað um sameiningu bótaflokka, að framfærsluuppbót með svokallaðri krónu á móti krónu skerðingu verði afnumin, en um leið og verði horft til starfsgetumats. Af því að hv. þingmaður spyr sérstaklega (Forseti hringir.) hvort við séum sérstaklega að tala um að skerða fólk án þess að það eigi í raun og veru kost á starfi þá er það (Forseti hringir.) alls ekki þannig sem ég sé það fyrir mér. (Forseti hringir.) Við höfum meira hugsað það þannig að (Forseti hringir.) við séum að horfa til (Forseti hringir.) aukinnar samfélagslegrar þátttöku en ekki að þvinga (Forseti hringir.) fólk í störf eða jafnvel atvinnuleysi, bara svo það liggi algjörlega skýrt fyrir.

(Forseti (SJS): Forseti verður að biðja hæstv. ráðherra að gæta að tímamörkum. Dagurinn er langur og ráðherrar verða að halda sig innan tímamarka eins og aðrir.)

Afsakið. Þetta eru miklar spurningar.