fjármálaáætlun 2019--2023.
Herra forseti. Ég vil aðeins nota tækifærið til þess að ljúka því sem ég kom ekki að áðan. Ég kem að starfshópnum um örorkulífeyrisþegana á eftir. Hv. þingmaður nefndi áðan að hér væru áætlaðir fjármunir í skattalækkanir. Eins og fram kemur mjög skýrt í áætluninni er gert ráð fyrir því í forsendum fjármálaáætlunar að unnt sé að lækka skatta sem nemur einu prósentustigi í tekjuskattskerfinu. Verði sú leið farin sem ég átti orðastað um áðan við nokkra hv. þingmenn og er rædd sérstaklega í fjármálaáætluninni, þ.e. að frekar sé horft til persónuafsláttarins, þá gagnast hún þeim hópi sem hv. þingmaður er að tala um, þeim tekjulægstu í samfélaginu. Við horfum til þess að markmið þess að létta af sköttum gagnist fyrst og fremst þeim hópi.
Hv. þingmaður spyr um þær hugmyndir sem ekki var sátt um á sínum tíma hvað varðar starfsgetumatið. Það er auðvitað ástæðan fyrir því að það sem við lukum samkomulagi um á þingi 2016 varðaði eingöngu eldri borgara, þ.e. af því að ekki náðist samstaða um breytingar um starfsgetumat sem voru á borðinu í nefndinni sem þá var starfandi. Þess vegna erum við að fara af stað í nýtt samtal við forsvarsmenn Öryrkjabandalagsins og Þroskahjálpar af því að það á ekki að ráðast í svona breytingar óháð því hvað fólk segir. Það er alls ekki þannig. Ég get alveg fullvissað hv. þingmann um að það stendur ekki til.
Hins vegar er það svo og ég held að það hljóti að vera sameiginlegt markmið okkar, að mikilvægt er að auka samfélagslega þátttöku öryrkja. Það er mikilvægt að tryggja þeim sem eru að hluta til á örorku en geta unnið að hluta til, þá möguleika að þeir geti það svo fremi það séu hlutastörf í boði. Um það er sérstaklega rætt í stjórnarsáttmála. Við erum að vísu með hærra hlutfall hlutastarfa hér á landi en víðast hvar annars staðar á Norðurlöndum, en það er samt eitthvað sem við þurfum að taka til sérstakrar skoðunar, hvernig við annars vegar, hið opinbera, og hins vegar almenni markaðurinn, getum horft til þess að framboð sé á störfum fyrir þá sem það geta og þess óska. (Forseti hringir.) En ástæða þess að við erum að fara aftur í þetta samráð er að ekki náðist samstaða á sínum tíma. Svona (Forseti hringir.) breytingar verða ekki innleiddar nema í samkomulagi.