148. löggjafarþing — 48. fundur,  12. apr. 2018.

fjármálaáætlun 2019--2023.

494. mál
[11:40]
Horfa

forsætisráðherra (Katrín Jakobsdóttir) (Vg):

Herra forseti. Hv. þingmaður kallar eftir pólitískri leiðsögn þegar kemur að þinginu. Hv. þingmaður ætti þá að horfa til þess sem er gert, ekki bara endurtaka málflutning um að hér sé einungis talað og ekkert gert. Ég fór yfir það hvernig verið er að reyna að efla hér þverpólitískt samráð, þó að því miður hafi þær nefndir ekki allar komist af stað, meðal annars vegna þess að stjórnarandstaðan hefur ekki tilnefnt sína fulltrúa í þær nefndir, eins og hefur komið fram, til að mynda þegar kom að nefnd um útlendingamál þar sem tók langan tíma að bíða eftir tilnefningum frá stjórnarandstöðunni.

Ég velti fyrir mér: Við vinnum ekki betur saman hér á þingi nema vilji sé til þess hjá öllum flokkum. Það er ósköp þægilegt að sitja í stjórnarandstöðu og benda á forsætisráðherra en Alþingi erum við 63 sem sitjum hér saman. Það er á okkar allra ábyrgð að taka þátt í því þegar höndin er rétt út og beðið um meira þverpólitískt samstarf. Ég hefði haldið að hv. þingmaður væri mjög til í það.

Ég virði eftirlitshlutverk þingsins á hverjum degi. Hér er fyrirspurnum svarað, tekið undir sérstakar umræður og hvað það er. Mér finnst það bara eðlilegt. Mér finnst gaman hér í þinginu. Það eina sem ég sakna við að vera ráðherra er að geta ekki verið meira í þinginu. Því mér finnst þingið vera mikilvægasta stofnun landsins. Hér fer hin raunverulega umræða fram.

Hv. þingmaður veður svo úr einu í annað, fer að tala um að það sé engin pólitísk leiðsögn í fjármálaáætlun. Engin pólitísk leiðsögn? (ÞKG: Engin.) Hér er verið að taka á því sem hefur einmitt verið stóra málið í síðustu kosningum, algerum skorti á samfélagslegri uppbyggingu í kjölfar þess að við höfum náð efnahagsbata. Það er það sem við höfum verið að ræða um hér fyrir síðustu og þarsíðustu kosningar. Ég skil vel að hv. þingmenn Viðreisnar séu aðeins súrir, fjármálaáætlun þeirra bar svo sannarlega ekki vott um stórhug eða sókn í þeim samfélagslegu innviðum. Það er allt í lagi. Við skulum bara losa það út hér. En að tala um að hér sé ekki pólitísk leiðsögn er auðvitað bara algert … ég bara segi: Það er ekki nokkurt inntak í því. (ÞKG: Hvar eru fjármagnstekjurnar?)