fjármálaáætlun 2019--2023.
Herra forseti. Fjármálaáætlun er framtíðarsýn ríkisstjórnar Katrínar Jakobsdóttur og Vinstri grænna, enda gildir áætlunin í fimm ár. Áætlunin vekur því upp fjölmargar spurningar. Af hverju vilja Vinstri græn ekki setja krónu til viðbótar í barnabætur og vaxtabætur næstu fimm árin? Af hverju vilja Vinstri græn setja nánast sömu krónutölu í framhaldsskólana næstu fimm árin? Af hverju vilja Vinstri græn setja helmingi minna fjármagn í uppbyggingu leiguíbúða en nú er gert?
Af hverju vilja Vinstri græn einungis setja einn þriðja af því sem var búið að lofa í háskólana? Af hverju vilja Vinstri græn tekjuskattslækkun sem færir þingmanninum þrisvar sinnum meiri lækkun en það sem kennarinn fær? Af hverju vilja Vinstri græn setja lækkun bankaskatts upp á 6 milljarða kr. í forgang? Af hverju vilja Vinstri græn einungis tryggja framlög til aldraðra og öryrkja sem samsvara aðallega fjölgun þessara hópa? Af hverju standa Vinstri græn að fjármálaáætlun sem Öryrkjabandalag Íslands kallaði ávísun á fátækt og eymd?
Af hverju vilja Vinstri græn beinlínis lækka framlög til menningar, lista, íþrótta- og æskulýðsmála næstu fimm árin? Af hverju dregst samneyslan saman næstu fimm árin þrátt fyrir orð forsætisráðherra fyrir nokkrum mánuðum um að samneyslan ætti að aukast vegna innviðauppbyggingar og breyttrar aldurssamsetningar þjóðarinnar? Af hverju stöndum við frammi fyrir uppsöfnuðum vanda og hugsanlegu verkfalli einnar mikilvægustu kvennastéttar landsins, ljósmæðra, á vakt Katrínar Jakobsdóttur og Vinstri grænna?
Herra forseti. Af hverju eru Vinstri græn eiginlega í þessari ríkisstjórn?