fjármálaáætlun 2019--2023.
Ég þakka hæstv. forsætisráðherra fyrir svarið sem undirstrikar að sínu leyti það sem ég leyfði mér að segja hérna, hversu haganlega samansett þetta plagg er. Það er hægt að vísa til þess að allir góðir hlutir séu fram undan og allt verði frábært. Það verður þá að koma í ljós, hæstv. forsætisráðherra. Með því verður fylgst og eftir því verður gengið.
Auðvitað er tíminn orðinn hér knappur. Ég tók eftir því að forsætisráðherra hafði ekki tíma til að víkja að margnefndri fyrirhugaðri lækkun á bankaskatti sem auðvitað liggur fyrir sem staðreynd.
Ég leyfi mér að taka upp við forsætisráðherra mál sem virðist hafa verið að velkjast á milli tveggja ráðherra í hennar ríkisstjórn, mál sem er mjög stórt í hugum þeirra sem helst hafa kynnt sér það, það er það úrræði í geðheilbrigðismálum sem heitir Hugarafl. Ég hef nú áhuga á að ræða nánar við (Forseti hringir.) heilbrigðisráðherra hér á eftir, en af þessari ástæðu sem ég nefndi, að þetta hefur verið að velkjast á milli (Forseti hringir.) tveggja ráðherra í ríkisstjórn hæstv. forsætisráðherra, vil ég leyfa mér að höfða til hennar sem eins konar neyðarhemils í þessu máli og (Forseti hringir.) hvetja hana til að gaumgæfa þetta mál og stöðva það (Forseti hringir.) að þessi þjóðþrifastarfsemi verði lögð niður á hennar vakt.