fjármálaáætlun 2019--2023.
Þá er lokið umræðu um málaflokka forsætisráðherra. Sú umræða hefur tekið eina klukkustund og 50 mínútur sem er nokkru lengra en áætlað var að hver málaflokkur myndi taka. Forseti verður að viðurkenna að hann, eftir á að hyggja, telur sig hafa verið of umburðarlyndan gagnvart því að menn færu iðulega þó nokkuð fram úr settum ræðutíma. Það mun lengja mjög daginn ef þeir sem á forsetastóli verða verða jafn linir af sér og núverandi forseti hefur verið. Forseti mælist til þess að menn hafi í huga að við höfum takmarkaðan tíma og virði þau mörk.
Þá snúum við okkur að málaflokki hæstv. heilbrigðisráðherra.