148. löggjafarþing — 48. fundur,  12. apr. 2018.

fjármálaáætlun 2019--2023.

494. mál
[12:27]
Horfa

Forseti (Jón Þór Ólafsson):

Til þess að umræðurnar geti farið vel fram í dag vill forseti minna á að hann er umburðarlyndur forseti. Og jafnframt til að við höldum samt sem áður tímamörkin ætla ég að gefa svona létt högg á þennan stað sem hamarinn hvílir á tíu sekúndum áður en ræðutíma lýkur svo að menn geti farið að klára mál sitt án þess að fara yfir ræðutíma.