148. löggjafarþing — 48. fundur,  12. apr. 2018.

fjármálaáætlun 2019--2023.

494. mál
[12:41]
Horfa

Anna Kolbrún Árnadóttir (M):

Ég þakka hæstv. ráðherra kærlega fyrir greinargott svar. Ég myndi gjarnan vilja sjá BUG-teymið tiltekið alveg eins og BUGL-teymið í fjármálaáætlun. Það er sá punktur sem ég vildi leggja áherslu á af því að ég geri mér grein fyrir að Landspítalinn á auðvitað að ráðstafa sínu fjármagni líkt og Sjúkrahúsið á Akureyri. Því þá ekki að tiltaka bæði teymin? Þau eru jafn mikilvæg, þannig að ég vil halda því svolítið áfram.

Þegar við erum að reyna að koma í veg fyrir að upp safnist vandi höfum við reynt að setja upp teymi innan heilsugæslunnar. Það er vel. Ég reiknaði mér til að við værum búin að fullmanna heilsugæsluna sem sinnir mínu svæði, á Akureyri og þar í kring. Þar eru fjórir sálfræðingar sem eiga þá að dekka 36.000 íbúa. Vonandi gengur það vel. En það breytir ekki því að biðlistinn þar er óheyrilega langur. Hann er svo langur að fólki er bent á einkarekna þjónustu sem kostar 15.000 á tímann.

Því er mín síðasta spurning þessi: Af hverju í ósköpunum erum við ekki búin að opna á rammasamning við Sjúkratryggingar Íslands? Af hverju þurfum við að standa hér og óska eftir sálfræðiþjónustu fyrir fanga, fyrir framhaldsskólanema, fyrir háskólanema? Af hverju opnum við einfaldlega ekki á það að sálfræðingar fari undir Sjúkratryggingar, fólk fengið þar niðurgreidda þjónustu sálfræðinga, alveg eins og við gerðum fyrir sjúkraþjálfara? Ég sé engan mun á þeirri þjónustu sem þar á að veita. Þess vegna langar mig í svar við þessu.