148. löggjafarþing — 48. fundur,  12. apr. 2018.

fjármálaáætlun 2019--2023.

494. mál
[12:49]
Horfa

Ásmundur Friðriksson (S):

Virðulegi forseti. Ég þakka ráðherra þessi afbragðsgóðu svör. Ég bind vonir við það að við munum eiga samleið í því að vinna að þessum góðu málefnum ásamt þingheimi.

Mig langar í framhaldinu af þessu að ræða einmitt um utanspítalaþjónustu og sjúkraflutninga sem hafa núna um margra ára skeið eins og við vitum verið vanfjármagnaðir og það þarf auðvitað að bæta búnað og menntun sjúkraflutningamanna. Mig langar að spyrja ráðherrann hvort hann hyggist leggja áherslu á að styrkja stöðu sjúkraflutninga. Eins langar mig að spyrja ráðherrann hvort það komi til greina að sjúkraflutningar verði gjaldfrjálsir, gjaldfríir, sem hefur fengið töluverða umræðu í samfélaginu.

Mig langar líka, þó að það sé nú ekki langur tími að spyrja ráðherrann, að koma inn á þá miklu umræðu sem hefur verið í samfélaginu um forvarnir. Þar eru stofnanir eins og Heilsustofnunin í Hveragerði og Reykjalundur. Ég vil spyrja hvort ekki sé mjög mikilvægt að við leggjum mjög mikla áherslu á forvarnir og þessar stofnanir sem hafa verið að gera algjörlega frábæra hluti en hafa verið vanfjármagnaðir á undanförnum árum. Verður svigrúm fyrir þær í þessari fimm ára áætlun? Eins langar mig að spyrja hana um Sjúkrahúsið Vog, hvort ekki sé líka mjög tímabært að bæta aðstöðu þar og stytta biðlista þar sem eru yfir 300 manns á biðlista og eins hjá öðrum meðferðarstofnunum sem eru að gera gríðarlega góða hluti líka. Þarna er verið að koma fólki aftur til starfa sem er gríðarlega mikilvægt fyrir samfélagið. Við þurfum að standa saman og vinna að því að efla forvarnir í landinu.