148. löggjafarþing — 48. fundur,  12. apr. 2018.

fjármálaáætlun 2019--2023.

494. mál
[13:09]
Horfa

heilbrigðisráðherra (Svandís Svavarsdóttir) (Vg):

Virðulegi forseti. Ég þakka enn hv. þingmanni fyrir hennar innlegg og vangaveltur í þessu. Ég skil hana sem svo að hennar helstu vangaveltur lúti að jafnræði í aðgengi að heilbrigðisþjónustu óháð búsetu. Það skiptir auðvitað gríðarlega miklu máli. Af því við áttum hér aðeins í orðaskiptum áðan varðandi verktöku lækna þá held ég að ekki megi gleyma þeim þætti sem lýtur að rétti fólks óháð búsetu til að njóta samfellu í heilbrigðisþjónustu, þ.e. að það sé ekki einn læknir í dag og annar á morgun og að heilbrigðisþjónusta sé ekki einhvers konar tæknilegt úrlausnarefni heldur snúist líka um ákveðið traust og heilindi í samfélaginu, að viðkomandi viti að hverju hann gangi og geti notið heilbrigðisþjónustunnar þannig að hún sé partur af æðaslætti viðkomandi nærsamfélags. Ég held að það skipti líka mjög miklu máli og verði ekkert of oft sagt í raun og veru. Við megum ekki ræða um heilbrigðisþjónustuna eins og hún snúist um að haka við í box, að einhver læknir sé á einhverjum tíma einhvers staðar, heldur þarf hún líka að snúast um gerð samfélagsins til lengri tíma.

Hv. þingmaður nefndi líka forvarnastarfið. Það er mér sérstaklega ofarlega í sinni. Og ekki síst — ég vék aðeins að því áðan í andsvari við hv. þingmann — þegar kemur að þjónustu við aldraða. Ég held að það skipti alveg gríðarlega miklu máli þar að teygja sig meira í áttina til aldraðra. Samfélagið gerir það með meira afgerandi og virkum hætti til að styðja aldraða til að bera ábyrgð á sinni heilsu betur og lengur og þar með að geta notið lífsgæða lengur og í eigin umhverfi og á eigin heimili ef viðkomandi kýs svo. Þetta á auðvitað við um allt land en ekki síður á landsbyggðinni.