fjármálaáætlun 2019--2023.
Virðulegi forseti. Þetta var náttúrlega dálítið gott hjá hv. þingmanni og minnir mig kannski á að tala meira við Óla Björn Kárason, ekki að það sé sérstakt markmið í mínu lífi.
Í fyrsta lagi spyr hv. þingmaður, sem mér finnst mjög góð spurning, hvort ráðherrann væri með góða tilfinningu fyrir því að hún hafi yfirsýn yfir það nákvæmlega hvernig fjármagninu er ráðstafað núna inn í heilbrigðiskerfið. Ég hef ekki sérstaklega góða tilfinningu fyrir því, nei. Þetta eru yfir 200 samningar til að mynda sem eru hjá Sjúkratryggingum Íslands. Í mörgum þeirra erum við í raun að tala um það að upphæðin er uppreiknuð frá ári til árs og það eru upplýsingarnar sem ég hef. Forsendurnar sem ég hef frá heilbrigðisstofnunum eru misöflugar, það eru missterkar hagdeildir ef svo má að orði komast á heilbrigðisstofnunum.
Við erum mjög vanbúin á Íslandi hvað varðar hagtölur í heilbrigðis- og velferðarmálum almennt. Það finnst mér vera áhyggjuefni, ekki síst vegna þess hversu stór gerandi heilbrigðiskerfið er í þeim hreyfingum sem verða á ríkissjóði. Mér finnst við því vera mjög vanbúin og það kom mér mjög á óvart þegar ég kom í heilbrigðisráðuneytið, eða í ráðuneyti velferðarmála, hversu veika stöðu við höfum til þess að kalla eftir gögnum og kalla eftir tölum jafnharðan. Sterkasta hagdeildin í heilbrigðiskerfinu er sennilega hjá Landspítalanum. Þannig er staðan.
Hv. þingmaður spyr síðan hvort hafi réttar fyrir sér um tölurnar, ráðherrann eða hv. þm. Óli Björn Kárason. Það sem ég er að tala um þegar ég segi 101 og 79, og þegar ég segi 101, þá er ég að leggja saman það sem fer til framkvæmda á tímabilinu öllu. Ég get afhent hv. þingmanni útreikninga sem ég er með úr ráðuneytinu um þetta, ég er að tala um rúmlega 60 milljarða í háskólasjúkrahúsið og 25 eða 26 í hjúkrunarheimili og annað í aðra þætti. Ég get vonandi komið að seinni tölunni í síðara svari.