fjármálaáætlun 2019--2023.
Virðulegi forseti. Í fyrsta lagi varðandi lokaorð hv. þingmanns um fréttatilkynningu sem var að koma í fjölmiðlum í dag um SÁÁ og yngsta hópinn sem hefur verið á sjúkrahúsinu Vogi vegna fíknar. Næstu skref eru þau að við munum funda í ráðuneytinu með þeim sem best þekkja til í þessum geira. SÁÁ hefur í sinni fréttatilkynningu skýrt þessa ákvörðun sína með tilvísun til tiltekinna atvika sem upp hafa komið. Ráðuneytið getur ekkert annað en sest niður og farið yfir þau mál með SÁÁ eins og eðlilegt er.
Af því að hv. þingmaður talaði um McKinsey-skýrsluna er á minni dagskrá á allra næstu dögum, ég held meira að segja að það sé í næstu viku, fundur með höfundum þeirrar skýrslu til að gæta að því að halda þeirri umræðu til haga. Ég tek undir með hv. þingmanni að full ástæða er til að ræða áfram það sem þar kemur fram.