148. löggjafarþing — 48. fundur,  12. apr. 2018.

fjármálaáætlun 2019--2023.

494. mál
[13:44]
Horfa

Jón Þór Ólafsson (P):

Herra forseti. Mig langar að ræða við hæstv. heilbrigðisráðherra Svandísi Svavarsdóttur um fjármálaáætlunina og svo stöðuna á vinnumarkaði, og þá sér í lagi þegar kemur að heilbrigðisstarfsfólki. Við stóðum nefnilega hér saman í þingsal þegar lög voru sett á verkfall heilbrigðisstétta. Ég man vel eftir góðu samstarfi þá. Heilbrigðisráðherra er náttúrlega vel inni í þeim málum sem þá voru í gangi. Ég horfði á ræðu sem ég hélt þá og tók saman það sem kom frá landlækni á þeim tíma, sem nú er aðstoðarmaður heilbrigðisráðherra.

Tveimur vikum fyrir verkfall heilbrigðisstétta, m.a. ljósmæðra og hjúkrunarfræðinga, geislafræðinga og fleiri, sendi landlæknir bréf á ríkisstjórnina og sagði að ekki væri hægt að tryggja öryggi sjúklinga í landinu. Svo degi áður en verkfallið skall á sendi hann annað bréf. Það er hægt að sjá þetta á blogginu mínu núna. Ég setti þetta þar inn. Þá var sagt að bregðast yrði við með einum eða öðrum hætti. Það sem var í boði þá var að semja ekki. Og það var ekki samið. Það voru bara sett lög á verkfall ljósmæðra og hjúkrunarfræðinga. Það var ekki langtímalausn, sagði landlæknir þá. Og nú kemur á daginn að samningar eru aftur lausir hjá þessum stéttum. Það er ekki langtímalausn. Nú eru ljósmæður margar hverjar búnar að segja upp. Þetta er eitt nærtækasta og alvarlegasta dæmið sem við stöndum frammi fyrir í heilbrigðiskerfinu núna, kannski mesta hættan sem við stöndum frammi fyrir. Heilbrigðisráðherra nefndi rétt áðan að það væri hlutverk heilbrigðisráðherra, forsætisráðherra og fjármálaráðherra að bregðast við þessu. Hvað sér heilbrigðisráðherra fyrir sér í þessum málum hvað þetta varðar?