148. löggjafarþing — 48. fundur,  12. apr. 2018.

fjármálaáætlun 2019--2023.

494. mál
[14:02]
Horfa

Hanna Katrín Friðriksson (V):

Forseti. Ég þakka svörin og hlakka til að fylgjast með hvernig þetta er gert. Eins og ágætur maður innan úr kerfinu sagði við mig, þetta er líklegt til að setja Ríkiskaup á hliðina ef ekki er vel vandað til.

Mig langar til að nota síðustu sekúndurnar sem ég hef hér eftir ágætar samræður við hæstv. heilbrigðisráðherra til að koma aðeins aftur að því sem við ræddum í sambandi við rekstrarformin. Ráðherra ýjaði að því að þarna værum við farin í hefðbundnar skotgrafir. Mér finnst það pínulítið ódýrt. Við erum að ræða pólitík, ræða um það hvernig við nýtum fjármunina best. Það stefnum við báðar á. En við erum kannski ekki endilega sammála. Mér finnst ansi bratt að tala um að ég sé að fara niður í skotgrafir og að þarna sé einhver gróðavegur, sem við viljum ekki, það vill það enginn. Af hverju ætti ég að vilja að mínir skattpeningar færu í slíkt? Mér finnst það ansi bratt á sama tíma og staðreyndin er sú að það er mikið eftirlit með einkarekinni starfsemi. Einstaka sinnum hefur verið farið út fyrir strikið þar en hæstv. ráðherra segir sjálfur hér að hann hefur ekki yfirsýnina yfir (Forseti hringir.) kerfið. Kerfið er jú fyrst og fremst opinber rekstur.

Þetta eru ekki skotgrafir, þetta er pólitík.