fjármálaáætlun 2019--2023.
Virðulegi forseti. Ég vil eiga hér samtal við hæstv. umhverfisráðherra um tvo þætti og ætla fyrst að halda áfram þar sem frá var horfið varðandi skógræktina. Ég fagna eins og aðrir hér þessari myndarlegu aukningu til umhverfismála. Ég held að það muni skila okkur margfalt til baka á marga vegu.
Varðandi skógræktina og kolefnisgjöldin þá er kannski ekki rétt fullyrðingin sem kom fram áðan um að helmingur af mengun kæmi frá bifreiðum. Það eru aðeins 4% af heildarlosun sem kemur frá fólksbílum. Þess vegna spyr ég: Er ekki hægt að kolefnisjafna strax notkun fólksbifreiða með því að setja það sem innheimtist af kolefnisgjöldum af eldsneyti í skógrækt? Mig langar líka að spyrja hæstv. ráðherra að því hversu hratt hann getur komið með einhverjar yfirlýsingar um það hversu mikið fer í nýskógrækt, ég held að það skipti miklu máli upp á að hægt sé að fara að undirbúa það. Það er hvað hraðasta leiðin til þess að binda kolefni og það þarf að undirbúa skógræktina í töluverðan tíma. Þess vegna liggur mikið á að gera þetta. Og einmitt eins og hæstv. ráðherra sagði í sínu framsöguerindi, þetta fjölgar störfum úti á landi.
Við eigum alla stjórnsýsluna til í skógræktinni þannig að það þarf ekki að fara að byggja hana upp. Við eigum rannsóknirnar og þekkinguna að mestu leyti. Við erum með skipulagt land nú þegar. Við erum með skógarbændur sem eru tilbúnir að taka við fleiri plöntum. Það er þetta tvennt. Hversu fljótt getum séð hversu miklu við ætlum að verja í skógrækt? Það má ekki bíða. (Forseti hringir.) Og er ekki hægt að gera umferðina kolefnishlutlausa strax með því sem hún borgar í kolefnisgjöld?